Mergjaður árangur hjá Annie Mist

Þó að ég megi heita anti-sportisti, og hef t.a.m krónískt óþol gagnvart síbylju um boltaleiki, þá hef ég lítillega kynnt mér crossfit og þykir nokkuð til þeirrar íþróttar koma. Hún virðist að mestu laus við hópsálarstemminguna sem fylgir t.d boltaíþróttum og er skemmtilega árangursmiðuð rétt eins og frjálsar íþróttir. Miðað við það sem ég hef séð frá þessu sporti þá er það alveg ótrúlegur árangur hjá Annie að mæta þeim bestu (á heimavelli) og fara með sigur af hólmi.  Upphæð verðlaunanna bendir til að mótið hafi verið alvöru og undirstrikar árangurinn.

 


mbl.is Annie Mist sigraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þannig vill til að knattspyrna er og hefur verið VINSÆLASTA íþrótt í heiminum í áratugi. Þannig að þú sérð hvaða álit heimurinn hefur á ,,crossfiti".

Lára (IP-tala skráð) 1.8.2011 kl. 17:01

2 Smámynd: Ólafur Eiríksson

Vissulega er knattspyrna vinsæl , einkum sem sjónvarpsefni. Hinsvegar segir það afskaplega lítið -ef nokkuð- um álit heimsins(?) á crossfitness. Það er síðan smekkur hvers og eins hvort að mat á íþróttum fer eftir vinsældum þeirra. Það sem ég vildi kannski sagt hafa en sagði ekki beinlínis í færslunni er að Annie á þennan árangur ein og sér þó svo að vafalítið hafi nú notið stuðnings margra á leiðinni í markið.

Ólafur Eiríksson, 1.8.2011 kl. 19:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sitt lítið af hverju

Höfundur

Ólafur Eiríksson
Ólafur Eiríksson
Óbreyttur
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • hjólhýsi
  • ...dsc00019
  • ...dild_888966
  • ...thusundkall
  • ...slit_877880

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 38854

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband