Skilaboð til heimabrúks.

Mér hefur aldrei gengið vel að skilja trúað fólk og það versnar sífellt. Þessvegna ætla ég mér ekki þá dul að túlka þessi viðbrögð Jenis út frá trúarlegum forsendum; hvort að hans afstaða sé í einhverju samræmi við þá trú sem hann kveðst aðhyllast.

Af sömu sökum þýðir lítið fyrir mig að reyna að skilja hvernig stendur á því að svo margir láta kynferðismál eða kynhneigð annarra sig varða enda leika trúarbrögð þar -merkilegt nokk-  enn lykilhlutverk sem skoðanamyndandi afl. Hreinar siðferðislegar forsendur réttlæta ekki þessi viðbrögð hans.

Sem betur fer er til veraldleg skýring á þessum viðbrögðum Jenis frá Rana. Hún er sú að hann sé að viðhalda sinni pólitísku línu og skilaboðin séu ætluð hans eigin kjósendum. Taki íslendingar þessu illa verður bara að hafa það. Það er ásættanlegur fórnarkostnaður á móti ágóðanum af því að halda sínu pólitíska andliti heimafyrir og marka sína sérstöðu. Það mætti hvort heldur er kalla þetta; stefnufestu, nú eða lýðskrum til heimabrúks. Trúarviðhorf fólks ráða líklega mestu um hvort verður fyrir valinu.

 

 


mbl.is Neitar að sitja veislu með Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sitt lítið af hverju

Höfundur

Ólafur Eiríksson
Ólafur Eiríksson
Óbreyttur
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • hjólhýsi
  • ...dsc00019
  • ...dild_888966
  • ...thusundkall
  • ...slit_877880

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 38854

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband