Díll!

Stjórnvöld landanna þriggja eru sammála um að velta kostnaðinum yfir á þrotabú Landsbankans eftir fremsta megni. Bretar og Hollendingar eru búnir að slá vaxtakröfur niður.Samþykkt icesave tryggir líklega stuðning Breta, Hollendinga og jafnvel ESB blokkarinnar í heild við neyðarlögin og uppgjörsaðferðir á Landsbankanum. Þar er mikið í húfi, augljóslega varðandi uppgjör megin upphæðar icesave en því til viðbótar eru gríðarlegar fjárhæðir háðar því að neyðarlögin haldi.

Flestir ættu að geta haldið andlitinu sæmilega með þessa niðurstöðu. Stjórnin, stjórnarandstaðan, forsetinn, Bretar og Hollendingar.

Fara þarf yfir smáa letrið - hvort að þar leynist háskaleg ákvæði ef allt fer á versta veg. Reynist það í lagi eigum við að samþykkja þetta og halda áfram með lífið og tilveruna. 

 


mbl.is Kostnaður 50 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Algjörlega sammála. Virkilega góður samningur fyrir Ísland.

Nonni (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 20:12

2 identicon

Þegar Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands setti hryðjuverkalögin, samin fyrir óvini Hins Frjálsa Heims, á þá eitt hæststandandi land í heiminum, siðferðilega sem á öðrum sviðum, Ísland, með lengstu alþingishefð í veröldinni..............herlaust land sem var á toppnum á Global Peace Index sem friðsælasta og mest friðelskandi land heims......

þá sveik hann Vestræna menningu eins og hún lagði sig. Lagði lóð á vogarskálar þeirra sem vilja tortýma henni með að gera lítið úr hryðjuverkalögunum, og lagði eyðingaröflunum lið með að bera þau saman við 30 misvitra íslenska bankamenn.

Að láta þjóðina alla gjalda siðferðis örfárra óvinsælla bankamanna er sama "lógík" og var að baki Helförinni, sem nazistar, óvinir Vestrænnar menningar eins og Gordon Brown og terroristarnir vinir hans sem þakka honum fyrir að vera komnir á blað með Íslandi og þar með hvítþvegnir, töldu sanngjarna laus við hinu svokallaða "gyðingavandamáli".

Ef Íslendingar taka á sig þessar skuldir munu þeir hljóta slæmt karma fyrir, afþví skuldaþrældómur er helsta ástæða sárrar fátæktar fátækustu ríkja heims, en ekki skortur á matvælum eða annað. Þeir sem ekki þekkja til ættu að kynna sér "Make Poverty History" átakið sem Bono í U2 var front maður fyrir. Við skuldum þessum þjóðum að við látum ekki þjóðirnar sem hnepptu þau í þennan þrældóm og hafa með því svellt milljónir og milljarða barna í hel......hneppa okkur í þrældóm líka. Ef við sleppum við að borga, opnar það smugu fyrir þau að hætta að borga. Svo mikilvægt er okkar hlutverk, og ófyrirgefanlegt að bregðast því núna, og erum við þá persónulega ábyrg fyrir sveltandi Afríkubúum og höfum með því að taka á okkur óréttlátar skuldir lagt persónulega blessun íslensku þjóðarinnar yfir meðferðina á okkar minnstu bræðrum meðal þjóða heims.

Að lokum skal hafa í huga að Þroskastríðið er ekki á enda. Bretar hafa arðrænt þjóðir heims hvað mest allra þjóða og heiminum blæðir enn undan heimsvaldastefnu þeirra. Þeir hafa lengi ásælst auðlindir okkar.

Frelsi - Jafnrétti - Bræðralag!

Á lykiltímum í veraldarsögunni þýðir ekki að hugsa smátt...Ísland verður að rísa undir hlutverki sínu.....

Að "samþykkja þetta og halda áfram með lífið" væri hreinn og klár glæpur gegn mannkyninu, og okkur yrði aldrei fyrirgefið, né myndum við fyrirgefa sjálfum okkur, og þá er þessi þjóð búin að vera...

Lykillinn (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 02:42

3 Smámynd: Ólafur Eiríksson

Lykillinn:

Án þess að fara út í það í lengra máli þá treysti ég mér ekki til að klífa þennan siðferðislega hamar sem þú telur okkur standa á í þessu máli.

Ég raunar sé hann ekki öðruvísi en litla hundaþúfu hvaðan við getum engin skilaboð sent sem kunna að gagnast fátækari þjóðum.

Ólafur Eiríksson, 10.12.2010 kl. 03:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sitt lítið af hverju

Höfundur

Ólafur Eiríksson
Ólafur Eiríksson
Óbreyttur
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • hjólhýsi
  • ...dsc00019
  • ...dild_888966
  • ...thusundkall
  • ...slit_877880

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband